17september

Ţetta finnst mér skondiđ!!!

Þetta er skemmtilegt. Sjáið þið þetta ekki fyrir ykkur hjónin sitja í sitthvoru horninu í sitthvorri tölvunni að kvarta yfir hvort öðru við hvort annað.
17. september 2007 klukkan 14:10
Hann sjálfur
Snillingur!!!
Engin athugasemd
13júní

Vörutorg!!!

Okey.

Er gaurinn í Vörutorgi ekki að grínast.

Seinna.
13. júní 2007 klukkan 09:22
Hann sjálfur
1 athugasemd
23maí

23. maí 2007!!!!!!!!!!!!!

Okey.

Sit á Players með Gaua og það eru 2 og hálfur tímai í leik, við komum klukkan 1 og náðum síðasta lausa borðinu og núna er staðurinn að verða fullur. Þetta verður svakalegur leikur. Fyrir þá sem ekki vita er Liverpool að fara að taka á móti AC Milan í úrslitum Meistaradeildar Evrópu, endurtekning frá 2005 og Milan hafa harma að hefna frá þeim leik þegar við "stálum" unnum leik frá þeim.

Seinna.
23. maí 2007 klukkan 16:22
Hann sjálfur
Bolti
Engin athugasemd
12maí

Kosningadagurinn mikli 2007!!!

Okey.

Þá er komið að þessum mikla kosningadegi árið 2007, ekki nóg með það að í dag skulum við kjósa fólk sem að við viljum að stjórni í okkar umboði til næstu fjögurra ára, heldur eigum við líka að kjósa þá austantjalds þjóð sem við viljum að haldi Eurovision á næsta ári. 
Ég hef verið einn af þessum óákveðnu þangað til í gærkvöldi en 3 flokkar höfðu komið til greina hjá mér og það var ekki fyrr en í gærkvöldi að ég fékk það svar sem ég var að leita eftir, hvaða flokkur ætlar að láta námslán mæta raunverulegri framfærslu þörf og það er það sem skiptir mig mestu máli næstu fjögur árin. Ómar Ragnarsson sagði að við ættum að kjósa með hjártanu en ég ætla að kjósa með hausnum og þess vegna ætla ég enn og aftur að setja X við kindina???

Seinna.

P.s. Áfram rússneska lagið!!!
12. maí 2007 klukkan 07:42
Hann sjálfur
Leiđinlegt Blogg
Engin athugasemd
11maí

Settur saksóknari!!!

Okey.

Sigurður Tómas Magnússon settur saksóknari í "Baugsmálinu" sást ganga útúr Háskólanum í Reykjavík með skjalatösku og gulan burðarpoka með bleiku svíni, ætli hann hafi snúist.

Seinna.
11. maí 2007 klukkan 10:54
Hann sjálfur
Snillingur!!!
Engin athugasemd
04maí

Úrslit!!!!


Okey.

Þá er maður loksins búinn í prófum og búinn að fá úrslit úr þeim, er ekkert hoppandi, hvorki af reiði né gleði en náði samt öllu. Svo gerðist það aftur sem fæstir nema allra bjartsýnustu menn og auðvitað alvöru "Poolarar" þorðu að vona sem sagt Liverpool komst í úrslit Meistaradeildar Evrópu í annað skipti á þremur árum. Þar mæta þeir aftur AC Milan, einsog árið 2005. Þetta er í 6. skiptið sem Liverpool kemst í úrslit Meistaradeildar Evrópu og hefur unnið í öll skiptin og skemmtileg tilviljun er að í þessi 5 skipti hefur Liverpool alltaf verið í alrauðum aðlalbúningum sínum og spilað gegn liðum í hvítu, þar sem bæði þessi lið leika í rauðum búningum þarf að draga um það hvort liðið fær að vera í sínum rauðu búningum. Það var dregið í dag um það hvort liðið verður í aðalbúningum sínum og af því má ráða hvaða lið vinnur "Eyrnastóran" þetta árið.

Seinna.
04. maí 2007 klukkan 19:03
Hann sjálfur
Bolti
Engin athugasemd
19apríl

Umbođ!!!

Okey.

"Fáviti getur því ekki verið lögmæltur umboðsmaður á fjármunaréttarsviði."
Hver er skilgreiningin á fá-viti, sá sem veit fátt, um hvað þá, skiptir það máli? Spyr sá sem ekki veit.

Seinna.
19. apríl 2007 klukkan 11:50
Hann sjálfur
Spurningar???
Engin athugasemd
18apríl

mbl.is/mm/folk!!!

Okey.

Í dálknum Fólkið á mbl.is vinna miklir íslensku sinnar því þeir taka sér það bessa leyfi að íslenska nöfn á erlendum stjörnum einsog
þessi frétt sínir, maðurinn heitir ekki Davíð, þeir nota ekki "í" og "ð" í Englandi. Ef dálkahöfundarnir færu að skrifa aðrar fréttir einsog íþróttafréttir hvernig myndu þeir íslenska nöfn einsog Nicky Butt og David Windass, spyr sá sem ekki veit.
Þetta er búið að bögga mig geðveikt mikið núna í langan tíma og varð ég bara að koma þessu frá mér, ekki það að ég liggi yfir þessum dálki endalaust.

Seinna.
18. apríl 2007 klukkan 08:57
Hann sjálfur
Leiđinlegt Blogg
Engin athugasemd
15apríl

Vitleysingur vikunar!!!

Okey.

Þessi fær titilinn vitleysingur vikunar, að sitja á stöðinni í klukkutíma, drekkandi kaffi og spjalla við löggurnar og svo kemur hvutti og þá er honum bara stungið inn.

Seinna.
15. apríl 2007 klukkan 01:39
Hann sjálfur
Vitleysingur Vikunar!!!
1 athugasemd
14apríl

Lestur!!!

Okey.

Pæling, ætli maður geti orðið lesblindur á því að lesa ofmikið, spyr sá sem ekki veit?

Seinna.
14. apríl 2007 klukkan 18:03
Hann sjálfur
Spurningar???
1 athugasemd

Klukkan

Auglýsing

Fyrirvari!

Athugiđ ađ ţađ sem stendur hér á ţessari síđu eru skođanir höfundar en ekki Bloggar.is, höfundur áskilur sér ţann rétt ađ hafa sínar skođanir í friđi og einnig ađ skipta um skođanir ţegar honum sínist og ađ vera í mótsögn viđ sig sjálfan. Höfundur áskilur sér einnig ţann rétt ađ greina ţannig frá stađreyndum ađ ţćr komi sem best út fyrir hann sjálfan.

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Before/After Elections Funny Images, When helmets make no sense Funny Images, I actually like some of them but I found this funny! Funny Images, Damn right Funny Images, When you see it… Funny Images, People who think outside the patterns are special!

Langar ţig í félagsskap?

Hérna líka!

Hér ćtla ég líka ađ skrifa einhverja ódauđlega speki sem á eftir ađ bergmála í eylífinni međ vizkunni sem Sókrates kom međ!

Leikur dagsins